Ágúst Valgarð bloggar

Laugardagur 2.júlí 2011

Brauð eða klattar úr hveitikími

Flokkun: matur — Efnisorð: — Ágúst @ 2:15

Fyrir nokkru síðan keypti konan mín fullt af hveitikími á tilboði.  Það er tilvalið að nýta þetta í brauð eða klatta, hér er uppskriftin:

5 bollar hveitikím

2 tsk lyftiduft

salt/krydd að vild, einnig má bæta krömdum hvítlauk útí

2 egg

3 msk olía

Þurrefnum blandað vel saman.  Restin sett útí og svo vatn eftir þörfum þar til þetta er orðið að þykkum graut.  Svo er hægt að gera annað af tvennu:

1) Móta litla klatta og steikja á pönnu úr kókosolíu

2) Smyrja deiginu á smjörpappír í flata ofnskúffu og baka í ofni við 200°C í ca.20 min. eða þar til brauðið er farið að taka lit og er vel bakað í gegn (prófa að skera í það).

Mér finnst mun þægilegra að nota bakstursaðferð #2 - þá þarf enga auka feiti og það þarf ekki að standa yfir pönnunni.  Brauðið er hægt að skera í mátulega ferninga með pissahníf :-)  Verði þér að góðu!

2 athugasemdir »

  1. Þetta kom skemmtilega á óvart og er meinhollt!

    Comment ritaði Ágúst — Laugardagur 2.júlí 2011 @ 3:32

  2. Búin að prófa þessa, hún er algjör snilld, takk :)

    Comment ritaði Alda — Miðvikudagur 6.júlí 2011 @ 9:25

RSS veita fyrir umræðu um þessa færslu. Slóð fyrir bakvísun

Færðu inn athugasemd

Knúið með WordPress