Stundum er lífið svo flókið. Verkefnin toga úr öllum áttum þangað til líking við undna tusku lýsir líðaninni best. Ég lendi oft í þessu þó að ég eigi að vita betur. Oft er orðið flókið að fylgja Jesú, en þegar það gerist er gott að staldra við og spyrna við fótum. Lífið í Jesú er nefnilega ekki hannað til að vera flókið. Ef það er orðið flókið þá erum við komin með slagsíðu og þurfum að rétta okkur af.
Kól 3:17 Hvað sem þér gjörið í orði eða verki, gjörið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann.
Þetta snýst allt um Jesú. Það koma stundir þar sem ég ranka við mér og átta mig á því að ég hef misst sjónar á einhverju af þeim grundvallaratriðum sem líf mitt sem lærisveinn þarf að byggja á. Þetta er ofur eðlilegt - þannig er bara lífið. Spurningin er ekki hvort ég er fullkominn heldur frekar að halda áfram að koma til Jesú, aftur og aftur, og einmitt leyfa honum að minna mig á þessi atriði og leiðrétta kúrsinn.
Í morgun áttaði ég mig t.d. á því að lífið var orðið flókið því það eru svo mörg verkefni sem bíða mín. Það getur auðveldlega verið yfirþyrmandi. Við erum að flytja inn í húsnæði sem þarf að ljúka við að mála og klára. Á sama tíma þarf að sinna fjölskyldunni vel og vinnunni. En sannleikurinn sá að verkefni mitt er aðeins eitt: Elska Jesú.
Versið hér fyrir ofan minnir á að allt sé gert í nafni Jesú. Þar með er líka ljóst að ef ekki er hægt að segja eða gera í nafni Jesú er best að sleppa því yfirleitt. Get ég sagt þetta í Jesú nafni? Get ég gert þetta í Jesú nafni?
Í dag ætla ég að hugsa um að elska Jesú með öllu því sem ég segi og geri. Í dag bið ég Jesú að sýna mér hver verkefni dagsins eru og vinn þau svo af heilum hug með það fyrir augum að verkin vinni ég fyrir hann.
Gærdagurinn er farinn, morgundagurinn er ekki kominn, ég hef bara daginn í dag.
Á mínum slæmu dögum er ég latur og viðutan - veit af ýmsum smáviðvikum en framkvæmi ekki. Heilbrigt viðhorf er að spyrja Jesú og vinna jafnóðum það sem hann leiðir mig til og finna gleðina í því að fá að þjóna honum með því sem hönd mín gerir hverju sinni. Ryksuga, fara út með ruslið, taka sér stund með syni sínum og leggja sjálfan sig til hliðar. Að þjóna Jesú gefur mikla uppskeru inn í líf okkar.
Guð blessi þér daginn!
Ég hef verið svo heppin að fá að koma að starfi ABC barnahjálpar síðan árið 2003. Á bakvið tjöldin hef ég sinnt því sem snýr að hugbúnaði og upplýsingatækni.
ABC er frábært tækifæri fyrir okkur íslendinga að láta gott af okkur leiða. Allan þann tíma sem dansinn um gullkálfinn dunaði sem hæst á árunum fyrir hrun hélt ABC áfram að nota íslenskar krónur til að byggja upp líf barna í löndum eins og Indlandi, Pakistan, Kený, Filippseyjum, Burkina Faso, Líberíu og Senegal.
Andspænis vandamálum heimsins upplifum við okkur oft svo smá. En sannleikurinn er sá að við getum öll lagt okkar af mörkum til að breyta þessum heimi til hins betra - eitt barni í einu, eina máltíð í einu og eina námsbók í einu. Með því að byggja upp nýja kynslóð sem hefur menntun og siðferðislega styrk til að takast á við áskoranir nýrrar aldar er hægt að breyta milljóna þjóðfélögum innan frá og út - eitt barn í einu.
Ég er sannfærður að mesta ríkidæmi okkar íslendinga felst í þeim tækifærum sem við höfum til að miðla öðrum af því sem við höfum - fórnandi kærleikur getur flutt fjöll og Guð notar hann til hluta sem eru stærri heldur en við getum gert okkur í hugarlund.
Smelltu hér til að styðja barn - breytum heiminum saman, eitt barn í einu
Við gerðum góða ferð á Vopnafjörð um helgina. Festum okkur reyndar uppi á heiði í gær þegar við áttum eftir um 35km - veðrið fór versnandi þannig að við hringdum í björgunarsveitina. Höfum aldrei lent í þessu áður - en þetta gekk allt vel. Skildum bílinn eftir og sóttum hann svo í morgun. Margrét María hafði á orði að það yrði frá mörgu að segja í skólanum í fyrramálið! Sigurjóni Óla fannst það hápunktur ferðarinnar að sitja í björgunasveitarbílnum
Hittum gott fólk á Vopnafirði. Báðum með sumum, áttum góð samtöl og tókum svo þátt í samkomu í Hvítasunnukirkjunni kl.14 í dag. Okkur finnst alltaf gaman að koma á Vopnafjörð - stefnum á heimsókn aftur áður en vorar…
Seinustu vikur hafa einkennst af sveppa- og berjatínslu. Ekki gefist tími í að tína mikið magn - en það er fátt skemmtilegra en að fara út í skóg og draga að aðföng fyrir veturinn
Rakst hér á þessa frábæru sveppahandbók: http://www.skogur.is/media/utgafa/Sveppahandbok_Skograektar_rikisins.pdf
Erum búin að prófa sveppasúpu, sveppasósu - og í gærkvöldi bjó Kolbrún til FRÁBÆRA bláberjaböku í eftirrétt.