Frænka mín er að fara til Kenýa á skátamót. Ég hef lengi staðið í þeirri trú að eitt það besta sem ungt fólk á Íslandi í dag getur gert er að fara út í heim og sjá hvað er þarna úti. Horfa í augun á börnunum, ganga um strætin sem lykta af þvagi, sjá gleði þeirra sem búa við skort - brjóta upp þann lokaða og takmarkaða heim sem við búum í og fylla öll skilningarvit af þeim stóra heimi sem er þarna úti.
Miðvikudagur 17.febrúar 2010
Föstudagur 22.janúar 2010
Afmæli og ferðalög Eyjólfsstaðabúa

Margrét María Ágústsdóttir
Þessi stelpa er 8 ára í dag. Það er merkilegt hvað tíminn líður hratt. Þessi mynd er tekin 2004.
Unnar heldur af stað á ráðstefnu í Sviss í dag á vegum Crown í Evrópu. Fólk víðsvegar að úr álfunni sækir þessa ráðstefnu. Við íslendingar höfum sannarlega sitthvað að læra um meðhöndlun fjármuna ekki satt?
Fyrsta ráðstefna Crown hér á landi var haldinn í maí 2009 - sjá nánar á http://peningarogbiblian.org/
Föstudagur 7.ágúst 2009
Stykkishólmur
Við Hjalti komum í Stykkishólm í dag til að heimsækja Hvítasunnukirkjuna hér. Áttum frábæra stund í kvöld kl.20. Á morgun kl.11 höldum við svo áfram, annað kvöld kl.20 og svo á sunnudaginn kl.13. Það er uppörvandi að hitta fólkið hér og mjög gefandi að tilbiðja Guð með þeim.