Hafragrautur er hollur, punktur. Að elda sér hafragraut að morgni er frábær og ódýr leið til að byrja daginn.
Nýlega fór ég að gera tilraunir með að taka afganginn af hafragrautnum, setja slatta af skyri saman við og 2-3 matskeiðar af hunangi - grípa þetta svo með mér til að borða í hádeginu í vinnunni. Þetta er hreinlega frábær fæða!
Í fyrradag týndum við fjölskyldan svo dálítið af bláberjum - það fór saman við hræringinn í morgun, mjög gott!