Ágúst Valgarð bloggar

Sunnudagur 7.júní 2009

Nokkrar myndir frá helginni

Flokkun: heimsóknir — Ágúst @ 8:32

Hér má sjá nokkrar myndir frá helginni:
http://picasaweb.google.com/agustkolbrun/20090607

Heimsóknir

Flokkun: heimsóknir — Ágúst @ 10:09

Það hefur verið líf og fjör að Eyjólfsstöðum um helgina.
Fjölskylda Kolbrúnar hefur verið sérlega dugleg að heimsækja okkur þessa dagana. Yngri bróðir hennar er ný farinn, í staðinn er systir hennar og foreldrar komnir :-)
Héðinn og Rainy frá Akureyri komu á fimmtudaginn og voru þangað til síðdegis í gær. Þau hafa verið dugleg að heimsækja okkur hér og við finnum hvernig Guð flæðir í gegnum vináttu okkar. Að efla vináttu og tengsl eflir ríki Guðs. Héðinn og Rainy buðu öllum á staðnum í hádegismat í gær - það var góður hópur.
Dögg og Fjalar komu með Jóel og Einar á föstudagskvöldið. Einar verður með töfrabrögð á Eskifirði í dag. Við fengum að sjá sýninguna hans í gær og var hún virkilega skemmtileg.
Í dag er sólskin og blíða á Eyjólfsstöðum.

Laugardagur 6.júní 2009

Gídeonkonur :o)

Flokkun: heimsóknir — Alda @ 10:12

Í lok maí fengum við 3 frábærar Gídeonkonur í heimsókn til okkar :o)

Þær lögðu á sig ferðalag frá Akureyri bara til að hittast með okkur hér, svo brunuðu þær heim aftur seinnipart þann dag. Kolbrún (kona Ágústar Valgarðs..) hittist með okkur og vorum við þá 5 samtals ;o)

Við áttum stórgóða stund saman, mikið talað, mikið borðað, svo áttum við frábæra bænastund…og viti menn..jú, það var svo jafnvel bara talað soldið meira ;o)  Það var svo frábært að fá þær hingað!

Ég (Alda) er eins og er eina Gídeonkonan á Héraði og tilheyri því kvennadeild Gídeons á Akureyri. Ég hef ekki upplifað mig sem stóran part af hópnum þar sem ég hef ekki gefið mér tíma til að bruna norður á fundi þó ég fái alltaf fundaboð, en þessi heimsókn þeirra kveikti í mér aftur, vonandi kemst ég á fundi öðru hverju.. aldrei að vita ;o)

Vonandi verður svo hægt að stofna Gíde0nkvennadeild austurlands einn daginn, biðjum fyrir því!

Þetta starf er alger snilld, hugsa sér, að fá að taka þátt í að gefa ómetanlegt orð Guðs til barna og fullorðinna.. þessi eintök þarf ekki að kaupa dýrum dómum í bókabúðum.. nei, heldur eru þau gefin…og með gleði :o)

Jæja, Gídeonpæjurnar voru alsælar með heimsóknina og höfðu orð á því að þær vildu endilega hafa þetta sem fastan árlegan viðburð..þeas Eyjólfsstaðaheimsóknina..og þá helst að gefa sér meiri tíma og dvelja jafnvel eina helgi eða svo :o)  já takk!!!!

dásemdardagur!

knús og kveðja, Alda!

Knúið með WordPress