Ágúst Valgarð bloggar

Fimmtudagur 5.febrúar 2009

Guð sem er skaparinn

Flokkun: Lærisveinastund — Efnisorð:, — Ágúst @ 10:52

Þetta er fyrsta færslan af (vonandi) mörgum þar sem ég birti svokallaðar “lærisveinastundir” - stundir sem ég skrifa fyrir börnin mín til að kenna þeim Biblíusögur o.þ.h. - sjá nánar hér.

Fara yfir aðal minnisversið á öllum stundunum - endurtekningin er aðal málið.

Minnisvers 1Mós 1:1-3 1  Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
2  Jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi Guðs sveif yfir vötnunum.
3  Guð sagði: “Verði ljós!” Og það varð ljós.

1 – Guð sagði verði ljós - (þetta er fyrsta stundin í þessari “kippu” af stundum)
1. Taka teppi – einn skríður undir teppið (teppið sett yfir).
2. Hinir fara með minnisversið, og þegar sagt er “Og það varð ljós” – þá stekkur viðkomandi undan teppinu.

2 – Guð skapaði jurtirnar (þetta er önnur stundin í þessari “kippu”, o.s.frv.)
1Mós 1:11  Guð sagði: “Láti jörðin af sér spretta græn grös, sáðjurtir og aldintré, sem hvert beri ávöxt eftir sinni tegund með sæði í á jörðinni.” Og það varð svo.

Segja börnun hvernig Guð skapaði allar jurtirnar – allskonar jurtir.  Núna ætlum við að skoða nokkrar jurtir.
1. Börnin eru send út til að finna blóm eða jurt sem þau þekkja ekki nafnið á.  Þau eiga að koma inn með dæmi um þessar jurtir – og mamma og pabbi segja þeim hvað jurtin heitir.  Ef þau vita það ekki, taka mynd af jurtinni og spyrja einhvern annan eða senda inn fyrirspurn.

3 – Guð skapaði manninn
1Mós 2:7 Þá myndaði Drottinn Guð manninn af leiri jarðar og blés lífsanda í nasir hans, og þannig varð maðurinn lifandi sál.
1. Fara með minnisversið (jafnvel gera leikinn með sængina aftur).  Lesa svo þetta vers og útskýra hvernig Guð skapaði manninn.
2. Eitt barn legst á gólfið (á sæng eða dýnu ef í boði).  Við lesum versið saman, um leið og við segjum “blés lífsanda í nasir hans” -  annað barn fer og kyssir nebbann – og þá rís barnið upp!

4 – Guð skapaði dýrin og fékk manninn til að gefa þeim nafn.
1Mós 2:19-20 19  Þá myndaði Drottinn Guð af jörðinni öll dýr merkurinnar og alla fugla loftsins og lét þau koma fyrir manninn til þess að sjá, hvað hann nefndi þau. Og hvert það heiti, sem maðurinn gæfi hinum lifandi skepnum, skyldi vera nafn þeirra.
20  Og maðurinn gaf nafn öllum fénaðinum og fuglum loftsins og öllum dýrum merkurinnar. En meðhjálp fyrir mann fann hann enga við sitt hæfi.

Raða tuskudýrum eða einhverju sem þau föndra á borðið.  Eitt barn í einu kemur að borðinu, velur sér dýr og gefur dýrinu svo nafn.

Knúið með WordPress