Ágúst Valgarð bloggar

Miðvikudagur 25.ágúst 2010

Myndir danskra landmælingamanna - Landmælingar Íslands LMÍ - Picasa Web Albums

Flokkun: almennt, ljósmyndun — Ágúst @ 12:27

Myndir danskra landmælingamanna - Landmælingar Íslands LMÍ - Picasa Web Albums.

Hér eru margar myndir sem gaman er að skoða.  Merkilegt hvað svarhvítt ljósmyndun er alltaf heillandi.  Nokkrar myndir sem eru bara virkilega góðar miðað við allt og allt.

Þriðjudagur 2.júní 2009

Hjálpleysur

Flokkun: ganga, ljósmyndun — Ágúst @ 11:29

Ég fór í frábæra síðdegisgöngu í gær - gekk inn dalinn á milli Hattarins og Sandfells - mér er tjáð að þessi dalur nefnist hjálpleysur. Ég vissi ekki hversu löng þessi leið er, lagði af stað rúmlega kl.17. Hafði bakpokann vel þungann til að æfa mig fyrir lengri göngur síðar í sumar - tók Hasselblad með og linsurnar þrjár. Sá ekki eftir því þar sem ég gat notað 40mm linsuna til að ná fallegu skoti af vatninu sem er innst í dalnum.
Það kom mér skemmtilega á óvart hvað þetta er falleg leið, og hvað það er fljótlegt að ganga þetta. Ég var kominn nánast að vatninu innst í dalnum um kl.18:30 - og var svo aðeins 45min. að ganga til baka (að vísu gengið greitt).
Fjölmargir fallegir lækir og litlir fossar - hreint út sagt frábær ganga. Nú langar mig að komast að því hvort hægt er að ganga áfram inn úr hjálpleysum og inn í Reyðarfjörð - það væri skemmtileg ganga.

Knúið með WordPress