Ágúst Valgarð bloggar
Hjartanærandi uppeldi
Námskeið í Hjartanærandi uppeldi verður haldið þrjá laugardaga: 14.apríl, 28.apríl og 5.maí - kl.10-16.
Staðsetning: Austurvegi 40b Selfossi
Dagsskipulag:
Kennsla kl.10 - 12,
Hádegismatur í 40 mín og allir hafa eitthvað einfalt með á hlaðborð.
Kennsla kl.12:40 til kl.16:00, með pásum.
Markviss staðföst viðurkenning, sem er aðaluppistaðan í Hjartanærandi uppeldi, virðist gera það að verkum að boðefnaframleiðsla í heila eykst.
Kostnaður: 9.800 fyrir einstakling, 15.800 fyrir hjón.
Innifalið er kennsla, glærur, lesefni, æfingar ofl.
Skráning og nánari upplýsingar: http://lifogframtid.net
Námskeiðið er á vegum “Líf og framtíð”
Nánar um efnið á ensku: http://difficultchild.com/
Umsagnir um námskeiðið:
Ég (Ágúst Valgarð) heyrði fyrst af Hjartanærandi uppeldi snemma á seinasta ári þegar Gréta (sem mun kenna) og Sigríður Jónsdóttir (http://ifokus.is/) voru í viðtali á RÚV. Báðar hafa sterka sögu að segja um hvaða jákvæðu áhrif þessi nálgun hafði með þeirra eigin börn.
Hvað sem þú gerir
Stundum er lífið svo flókið. Verkefnin toga úr öllum áttum þangað til líking við undna tusku lýsir líðaninni best. Ég lendi oft í þessu þó að ég eigi að vita betur. Oft er orðið flókið að fylgja Jesú, en þegar það gerist er gott að staldra við og spyrna við fótum. Lífið í Jesú er nefnilega ekki hannað til að vera flókið. Ef það er orðið flókið þá erum við komin með slagsíðu og þurfum að rétta okkur af.
Kól 3:17  Hvað sem þér gjörið í orði eða verki, gjörið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann.
Þetta snýst allt um Jesú. Það koma stundir þar sem ég ranka við mér og átta mig á því að ég hef misst sjónar á einhverju af þeim grundvallaratriðum sem líf mitt sem lærisveinn þarf að byggja á. Þetta er ofur eðlilegt - þannig er bara lífið. Spurningin er ekki hvort ég er fullkominn heldur frekar að halda áfram að koma til Jesú, aftur og aftur, og einmitt leyfa honum að minna mig á þessi atriði og leiðrétta kúrsinn.
Í morgun áttaði ég mig t.d. á því að lífið var orðið flókið því það eru svo mörg verkefni sem bíða mín. Það getur auðveldlega verið yfirþyrmandi. Við erum að flytja inn í húsnæði sem þarf að ljúka við að mála og klára. Á sama tíma þarf að sinna fjölskyldunni vel og vinnunni. En sannleikurinn sá að verkefni mitt er aðeins eitt: Elska Jesú.
Versið hér fyrir ofan minnir á að allt sé gert í nafni Jesú. Þar með er líka ljóst að ef ekki er hægt að segja eða gera í nafni Jesú er best að sleppa því yfirleitt. Get ég sagt þetta í Jesú nafni? Get ég gert þetta í Jesú nafni?
Í dag ætla ég að hugsa um að elska Jesú með öllu því sem ég segi og geri. Í dag bið ég Jesú að sýna mér hver verkefni dagsins eru og vinn þau svo af heilum hug með það fyrir augum að verkin vinni ég fyrir hann.
Gærdagurinn er farinn, morgundagurinn er ekki kominn, ég hef bara daginn í dag.
Á mínum slæmu dögum er ég latur og viðutan - veit af ýmsum smáviðvikum en framkvæmi ekki. Heilbrigt viðhorf er að spyrja Jesú og vinna jafnóðum það sem hann leiðir mig til og finna gleðina í því að fá að þjóna honum með því sem hönd mín gerir hverju sinni. Ryksuga, fara út með ruslið, taka sér stund með syni sínum og leggja sjálfan sig til hliðar. Að þjóna Jesú gefur mikla uppskeru inn í líf okkar.
Guð blessi þér daginn!
Hollar vöfflur
Þessar baka ég oft - finnst þær alltaf góðar.
6 bollar heilhveiti (eða spelt)
4-5 tsk. lyftiduft
1 bolli olía (hef notað ýmsilegt, repju, ólífu eða brætt smjör - virkar allt  )
1 ltr. mjólk (ca.)
1-2 tsk. vanilludropar
2-3 egg (eggin gefa lyftingu og gott bragð)
Má setja 1 tsk salt - en ég sleppi því yfirleitt.
Hræra þurrefnum saman, gott að nota hrærivél. Hræra svo rólega og bæta restinni við. Bæta mjólkinni rólega við - ekki setja meiri mjólk en svo að deigið sé mátulega þykkt, ekki oft þunnt (ekki eins og pönnukökur) en heldur ekki of þykkt.
Spelt er dýrt svo oftast nota ég heilhveiti.
Þetta er nokkuð stór uppskrift, en deigið geymist auðveldlega 2-3 daga í kæli í vel lokuðum umbúðum. Einnig finnst mér fínt að baka úr öllu deiginu og setja svo kaldar vöfflur í brauðrist
Gott með:
-sultu, rjóma, smjör, ostur, marmelaði, skinka, hlynsýróp, sykur, ávextir…. allt mögulegt! Mér finnst t.d. mjög gott að fá nýbakaða svona vöfflu með smá smjöri og smátt skornum vel þroskuðum banana.
Heitt kakó úr hunangi
Það er venja hjá okkur fjölskyldunni að ég hiti kakó á föstudagsmorgnum. Þetta er uppskriftin:
Botnfylli af vatni í pott (ca. 5mm).
Ein kúfuð matskeið kakó og önnur af hunangi.
Hrært vel saman (gott að nota písk) og soðið í minnst 2 min.
Mjólk bætt við (ca. 1 ltr) og hitað að suðu.
Má bæta við smá salti og/eða vanilludropum eftir smekk - en er ekki nauðsynlegt.
Þetta er allur galdurinn. Það er auðvelt að hafa kakóið sterkara eða daufara með því að minnka mjólkina, auka kakó/hunang o.s.frv.
Umsögn um rammaáætlun
Í gærkvöldi lauk opnu samráðs og kynningarferli rammaáætlunar um verndun og nýtingu náttúrusvæða - með áherslu á vatnsafls og jarðhitasvæði.
Fullnusta þessarar áætlunar mun hafa mikil áhrif á land okkar og víða valda óafturkræfingum breytingum sem við ættum að hugleiða vel áður en þær eru framkvæmdar.
Hægt er að skoða allar innsendar umsagnir hér: http://www.rammaaaetlun.is/umsagnir/innsendar-umsagnir/
Hér fyrir neðan er sú stutta umsögn sem ég sendi inn.
Umsögn um rammaáætun - virkjun í neðri hluta Þjórsár
Inngangur
Í þessari umsögn ætla ég ekki að endurtaka það sem aðrir hafa þegar sagt, t.d. umsögn nr. 121 frá Ólafi föður mínum eða umsögn frá ábúendum Herríðarhóli. Undir þessar umsagnir vil ég taka og hvet til þess að staldrað sé við og að virkjanir í neðri hluta Þjórsár séu settar í biðflokk.
Einnig vil ég taka undir það sem bent hefur verið á að rammaáætlun yfirsjáist að ræða aðra orkukosti eins og vindorku og sjávarföll. Ég set því spurningamerki við grunn forsendur þær sem rammaáætlun byggir á og hvet til þess að hún sé endurskoðuð í heild sinni með víðara sjónarhorni og standi þannig á sterkari grunni.
Í þessari umsögn vil ég hinsvegar ræða pólitísk-, samfélags- og byggðarsjónarmið.
Pólitík sjónarmið
Pólitík snýst um það hvernig landi við viljum búa í til langs tíma litið og hvaða ákvarðanir við tökum í dag til að ná því marki. Almennt finnst mér verulega skorta á að við íslendingar hugsum nógu langt fram í tímann og með nógu ábyrgum hætti hvað þetta varðar.
Við búum í litlu landi sem er ríkt af orku miðað við stærð. Samt sem áður myndi það varla duga einni erlendri stórborg þó allt virkjanlegt vatnsafl hérlendis væri virkjað. Þessar spurningar eru því allar afstæðar. Svör okkar og afstaða fer mjög eftir því hvaða forsendur við gefum okkur í upphafi.
Ég er sannfærður um að ríkjandi áhersla á stóriðju og vatnsaflsvirkjanir er þjóðinni ekki til heilla til langs tíma litið. Þetta er pólitísk afstaða sem erfitt eða ómögulegt er að rökstyðja vísindalegum staðreyndum.
Virkjanasinnar eru væntanlega á sinni skoðun því þeir telja fleiri virkjanir og meiri stóriðju landi og þjóð til heilla. Við sem mótmælum viljum einnig það sem best er fyrir land og þjóð - en erum ekki sammála þessari miklu áherslu á virkjanir.
Að byggja upp gott og heilbrigt þjóðfélag með traustan efnahag tekur tíma. Eins og nýleg dæmi sanna er oft betur heima setið en af stað farið þegar reyna á að græða mikla peninga á skjótum tíma - eða koma með einhverjar flýtilausnir inn í efnahag þjóðarinnar. Umræða um virkjanir og stóriðju virðist oft vera í þeim farvegi að knúið er á um framkvæmdir til að leysa aðkallandi vanda dagsins í dag. Þetta er mjög misráðið. Vatnsaflsvirkjanir eru stórar ákvarðanir sem hafa áhrif í marga mannsaldra - og flestar hafa þær óafturkræf áhrif það sem eftir er. Við verðum því að horfa að lágmarki 50 ár fram í tímann en ekki 5 ár, eða hvað þá 5 mánuði.
Það er þungt í ári á Íslandi í dag. Við megum samt ekki fórna langtíma gæðum til að leysa skammtíma vanda. Hér reynir á skapgerðar- og siðferðisstyrk þjóðarinnar og forystufólks hennar. Í dag eigum við að vinna að hag og heill þjóðarinnar til langs tíma litið. Þetta gerum við með því m.a. að:
Hlúa að uppeldi og menntun barna.
Hlúa að þekkingariðnaði og nýsköpun. Þetta tekur tíma og þarf þolinmæði.
Halda áfram því góða starfi sem unnið er í ferðaþjónustu og markaðsetningu á óspilltri náttúru Íslands. Sóknarfærin hér fara aðeins vaxandi með hverju árinu sem líður.
Það merkilega er að við þurfum ekkert endilega meiri fjármuni til að vinna að þessum atriðum sem nefnd eru hér ofar. Rannsóknir sýna að börnum á Íslandi líður betur núna heldur en fyrir kreppu því foreldar eyða nú meiri tíma með börnum sínum. Þekkingariðnaður og nýsköpun þarf fyrst og fremst stöðugleika í efnahagslífi og aðgang að hugmyndaríku, hæfileikaríku og sterku fólki. Ferðaþjónustan hefur verið í sókn á seinustu 3 árum - það er engin kreppa þar.
Við þurfum ekki fleiri vatnsaflsvirkjanir til að fá framgang í þessum atriðum. Vatnsaflsvirkjanir er ekki það sem við þurfum til að byggja upp heilbrigða og sterka þjóð til langs tíma litið.
Samfélags- og byggðarsjónarmið í sveitum við neðri Þjórsá
Ég ólst upp að Forsæti í Flóa og gekk í Menntaskólann að Laugarvatni. Núna haustið 2011 fluttist ég aftur í Flóahrepp eftir að hafa verið búsettur í Reykjavík, Minnesota og Austurlandi við nám og störf. Hvað kemur samfélaginu í Flóahreppi best hvað varðar fyrirliggjandi rammaáætlun?
Ferðaþjónusta á svæðinu fer vaxandi. Ljóst er að virkjanir á svæðinu munu hafa neikvæð áhrif á þá þróun. Það er sama hvað hver segir: Ferðamenn sækja í auknum mæli í óspillta náttúru. Því meira sem við spillum svæðum með því t.d. að reisa stíflu og leggja land undir vatn, uppistöðulón og drullu sem fylgir framburði jökulvatna - því meira stefnum við í hættu tækifærum okkar í ferðaþjónustu.
Þá kann einhver að spyrja hvort fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir verði ekki lyftistöng fyrir samfélagið. Ég starfa í hugbúnaði. Fljótlega eftir að ég flutti á svæðið, í ágúst síðastliðnum, barst þetta í tal. Viðmælandi minn hafði þá á orði hvort það myndi ekki koma sér vel fyrir mig að hafa betri nettenginu.
Mér finnst það rökleysa að ræða bættar nettengingar, gsm samband, vegi eða aðrar sponslur sem mótvægisaðgerðir við vatnsaflsvirkjanir. Eins og áður sagði, þá þurfum við að horfa að lágmarki 50 ár fram í tímann með vatnsaflsvirkjanir. Það er í hæsta máta ólíklegt að nettengingar dagsins í dag verði í notkun eftir 10 ár - hvað þá eftir 50! Það sama má segja um gsm samband. Vegir eru víða slæmir í Flóahreppi - en fremur vil ég hafa slæma vegi en fórna framtíðarmöguleikum með óafturkræfum náttúruspjöllum. Það er hroki og óvirðing við komandi kynslóðir að horfa ekki lengra fram í tímann og halda því fram að svokallaðar mótvægisaðgerðir séu heilbrigð leið til þess að takast á við svona stóra ákvörðun sem virkjanir í neðri hluta Þjórsár eru.
Á austurlandi bjó ég frá Júlí 2008 til Ágúst 2011. Á þessum tíma tók ég þátt í að stofna hugbúnaðarfyrirtæki sem bjó til um 3-5 ný störf á svæðinu og er með verkefni bæði erlendis og innlendis. Lykilinn að velgengi fyrirtækisins var fyrst og síðast það fólk sem myndaði teymið. Þar var kveikjan að verkefnunum og framgangi fyrirtækisins. Og ekki voru það verkefni fyrir áliðnaðinn. Seinast þegar ég vissi var innan við 1% af veltu fyrirtækisins úr þeim geira - þó að við séum staðsett á austurlandi.
Möguleikarnir eru að sama skapi til staðar á Suðurlandi - en góðir hlutir gerast hægt. Stöldrum við og setjum virkjanir í neðri hluta Þjórsár í biðflokk. Nú ríður á að rasa ekki um ráð fram.
Ágúst Valgarð Ólafsson - væntanlegur ábúandi Forsæti III
Tónmenntakennari frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
Tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjvaík
Guðfræðingur (MDiv) frá The Masters Institute - Minnesota
Innri lækning tónlist
Við viljum öll lifa lífi í jafnvægi. Þar sem slæmar tilfinningar koma jú þegar við á, en eru samt á sínum stað. Enginn kemst hinsvegar óskaddaður í gegnum lífið og öll þurfum við að fá lækningu á einhverju hið innra sem hefur markað okkur. Sjálfur hef ég upplifað yndislega lækningu - frelsi og kærleika þar sem áður var ótti og reiði. En ég á meira inni og er núna byrjaður að sækja LÍF fundi hjá Hvítasunnukirkjunni á Selfossi.
En tilefni þessarar færslu er að deila með ykkur tónlist sem fjallar um lækningu - góð tónlist sem hjálpar okkur að opna fyrir það sem Guð vill gera:
“Healing Begins” by Tenth Avenue North http://www.youtube.com/watch?v=SpjUIq7ahrQ&feature=related
“By Your Side” by Tenth Avenue North http://www.youtube.com/watch?v=CdjRmM0Q0qs&feature=related
“Beloved” by Tenth Avenue North http://www.youtube.com/watch?v=6CUGTIWCFyo
“Any Other Way” by Tenth Avenue North http://www.youtube.com/watch?v=fqO_dCfzBE4&feature=related
“Hold my Heart” by Tenth Avenue North http://www.youtube.com/watch?v=qEz2PsLJ-RI&feature=related
Njótið vel!
Brauð eða klattar úr hveitikími
Fyrir nokkru síðan keypti konan mín fullt af hveitikími á tilboði.  Það er tilvalið að nýta þetta í brauð eða klatta, hér er uppskriftin:
5 bollar hveitikím
2 tsk lyftiduft
salt/krydd að vild, einnig má bæta krömdum hvítlauk útí
2 egg
3 msk olía
Þurrefnum blandað vel saman.  Restin sett útí og svo vatn eftir þörfum þar til þetta er orðið að þykkum graut.  Svo er hægt að gera annað af tvennu:
1) Móta litla klatta og steikja á pönnu úr kókosolíu
2) Smyrja deiginu á smjörpappír í flata ofnskúffu og baka í ofni við 200°C í ca.20 min. eða þar til brauðið er farið að taka lit og er vel bakað í gegn (prófa að skera í það).
Mér finnst mun þægilegra að nota bakstursaðferð #2 - þá þarf enga auka feiti og það þarf ekki að standa yfir pönnunni.  Brauðið er hægt að skera í mátulega ferninga með pissahníf :-)  Verði þér að góðu!
Kennir Biblían að konur séu minna virði en karlar?
Í gær spunnust nokkrar umræður um nýlega tillögu mannrétindaráðs Reykjavíkurborgar á fésbókarsíðu konu minnar.  Einn aðili gaf sér eftirfarandi forsendu  ‎”konur ekki metnar til jafns við karla (sem er eitthvað sem Biblían styður).”  Í kjölfarið var eftirfarandi hlekkur kynntur til sögunnar: http://www.religioustolerance.org/ofe_bibl.htm
Þessi hlekkur fjallar aðeins um GT en ekki Nýja Testamentið.  Þegar við ræðum um Biblíuna þá erum við að ræða um Biblíuna í heild sinni. Þar að auki er ég ekki sammála þeirri niðurstöðu sem síðan sem vísað er í kemst að - það eru til góð rök gegn því sem þarna er listað.  Sterkustu rökin eru svo hvernig Jesús kom fram við konur - sérhver túlkun á Biblíunni verður að enda á því að vera rýnd “í gegnum Jesú.” Ef við spyrjum Debóru, Rahab, Rut, Ester, konuna við brunninn, konuna með alabasturbuðkinn, konur sem voru leiðtogar í frumkirkjunni og Páll postuli hrósar ofl. - þá á ég bágt með að trúa því að þær hafi upplifað boðskap Biblíunnar þannig að þær séu “minna virði” heldur en karlmenn.  Þvert á móti (og hér getum við tekið bara GT fyrir ef við viljum) má rökstyðja að boðskapurinn Biblíunnar hafi verið gríðarleg réttarbót fyrir konur ef skoðað er hvað tíðkaðist hjá öðrum þjóðum á sama svæði á sama tíma.
Álkaplaverksmiðja Seyðisfirði
Gott fólk - þeim sem ekki hafa heyrt af því þá vil ég auglýsa frábært framtak Seyðfirðinga.  Í stað þess að sitja með hendur í skauti sem fórnarlamb hefur fólk tekið höndum saman til að gera það sem hægt er til að koma verkefninu um álkaplaverksmiðju af stað.
Hér er slóð hópsins: http://www.facebook.com/home.php?sk=group_112930405460250&id=115531881866769 Leggðu inn á reikning áheit um hlutafé.  Ef þú leggur inn 100kr. þá gefur þú áheit um 100.000 í hlutafé, 10kr. er áheit um 10.0000 í hlutafé o.s.frv.   Reikninganúmerin:
0305-13-705757 eða
0176-05-570157
kt. 0205433539.
Jólakveðja
Kæru lesendur,
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þegar Guð gaf okkur son sinn Jesú Krist þá kveikti hann ljós með nýjum hætti í þessum heimi.  Enginn hefur opinberað Guð fyrir okkur eins og Jesú.  Sú opinberum lýsir okkur enn - og ljós hennar fer enn vaxandi.  Látum það skína.
Kær kveðja, Ágúst Valgarð