Gott fólk - ef það var einhverntíman góður tími til að elda meira heima - þá er sá tími sannarlega núna! Hér kemur uppskrift að einföldu en góðu heilhveitibrauði sem ég baka oft:
6 bollar heilhveiti (þú getur notað spelt, hveiti, 1-2 bolla af rúgmjöli og restin heilhveiti o.m.fl.)
5 teskeiðar lyftiduft
1-2 tsk. salt (eftir smekk)
(svo má bæta 3-5 rifjum af krömdum hvítlauk og/eða kryddjurtum til tilbreytingar)
Blandið öllu ofangreindu vel saman.
Bætið 2 bollum af vatni útí og 1/2 til heilan bolla af olíu. Hrærið.
Bætið svo við vatni eftir þörfum og hrærið í þangað til hræran er mátulega mjúk-seig. Ekki of blaut.
Skiptið deiginu í tvö form og bakið í við 180°C í rúma klukkustund. Einnig má hrúga deiginu á smjörpappír í ofnskúffu.
Það tekur mig innan við 10min. að hræra þessu saman og smella í ofninn - mjög fljótlegt - og mér finnst betra að borða þetta brauð heldur en flest annað brauðmeti. Ger og hveiti fer ekki vel í mig….
Ég er stödd á Þórshöfn hjá dóttur minni, og hún á svo mikið af heilhveiti.
því ákvað ég að leita mér að einfaldri uppskirft af heilhveitibrauði, og þessi varð fyrir valinu vegna þess að hún er merkt Ágústi á Eyjólfsstöðum.
Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði……
Drottinn blessi þig.
Helga á Höfn
Comment ritaði Guðný Helga Örvar — Laugardagur 23.október 2010 @ 5:06