Það er venja hjá okkur fjölskyldunni að ég hiti kakó á föstudagsmorgnum. Þetta er uppskriftin:
Botnfylli af vatni í pott (ca. 5mm).
Ein kúfuð matskeið kakó og önnur af hunangi.
Hrært vel saman (gott að nota písk) og soðið í minnst 2 min.
Mjólk bætt við (ca. 1 ltr) og hitað að suðu.
Má bæta við smá salti og/eða vanilludropum eftir smekk - en er ekki nauðsynlegt.
Þetta er allur galdurinn. Það er auðvelt að hafa kakóið sterkara eða daufara með því að minnka mjólkina, auka kakó/hunang o.s.frv.