Fyrir nokkru síðan keypti konan mín fullt af hveitikími á tilboði. Það er tilvalið að nýta þetta í brauð eða klatta, hér er uppskriftin:
5 bollar hveitikím
2 tsk lyftiduft
salt/krydd að vild, einnig má bæta krömdum hvítlauk útí
2 egg
3 msk olía
–
Þurrefnum blandað vel saman. Restin sett útí og svo vatn eftir þörfum þar til þetta er orðið að þykkum graut. Svo er hægt að gera annað af tvennu:
1) Móta litla klatta og steikja á pönnu úr kókosolíu
2) Smyrja deiginu á smjörpappír í flata ofnskúffu og baka í ofni við 200°C í ca.20 min. eða þar til brauðið er farið að taka lit og er vel bakað í gegn (prófa að skera í það).
Mér finnst mun þægilegra að nota bakstursaðferð #2 - þá þarf enga auka feiti og það þarf ekki að standa yfir pönnunni. Brauðið er hægt að skera í mátulega ferninga með pissahníf :-) Verði þér að góðu!
Í gær spunnust nokkrar umræður um nýlega tillögu mannrétindaráðs Reykjavíkurborgar á fésbókarsíðu konu minnar. Einn aðili gaf sér eftirfarandi forsendu ”konur ekki metnar til jafns við karla (sem er eitthvað sem Biblían styður).” Í kjölfarið var eftirfarandi hlekkur kynntur til sögunnar: http://www.religioustolerance.org/ofe_bibl.htm
Þessi hlekkur fjallar aðeins um GT en ekki Nýja Testamentið. Þegar við ræðum um Biblíuna þá erum við að ræða um Biblíuna í heild sinni. Þar að auki er ég ekki sammála þeirri niðurstöðu sem síðan sem vísað er í kemst að - það eru til góð rök gegn því sem þarna er listað. Sterkustu rökin eru svo hvernig Jesús kom fram við konur - sérhver túlkun á Biblíunni verður að enda á því að vera rýnd “í gegnum Jesú.” Ef við spyrjum Debóru, Rahab, Rut, Ester, konuna við brunninn, konuna með alabasturbuðkinn, konur sem voru leiðtogar í frumkirkjunni og Páll postuli hrósar ofl. - þá á ég bágt með að trúa því að þær hafi upplifað boðskap Biblíunnar þannig að þær séu “minna virði” heldur en karlmenn. Þvert á móti (og hér getum við tekið bara GT fyrir ef við viljum) má rökstyðja að boðskapurinn Biblíunnar hafi verið gríðarleg réttarbót fyrir konur ef skoðað er hvað tíðkaðist hjá öðrum þjóðum á sama svæði á sama tíma.
Gott fólk - þeim sem ekki hafa heyrt af því þá vil ég auglýsa frábært framtak Seyðfirðinga. Í stað þess að sitja með hendur í skauti sem fórnarlamb hefur fólk tekið höndum saman til að gera það sem hægt er til að koma verkefninu um álkaplaverksmiðju af stað.
Hér er slóð hópsins: http://www.facebook.com/home.php?sk=group_112930405460250&id=115531881866769 Leggðu inn á reikning áheit um hlutafé. Ef þú leggur inn 100kr. þá gefur þú áheit um 100.000 í hlutafé, 10kr. er áheit um 10.0000 í hlutafé o.s.frv. Reikninganúmerin:
0305-13-705757 eða
0176-05-570157
kt. 0205433539.
Kæru lesendur,
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þegar Guð gaf okkur son sinn Jesú Krist þá kveikti hann ljós með nýjum hætti í þessum heimi. Enginn hefur opinberað Guð fyrir okkur eins og Jesú. Sú opinberum lýsir okkur enn - og ljós hennar fer enn vaxandi. Látum það skína.
Kær kveðja, Ágúst Valgarð