Með því að þér vitið þetta fyrirfram, þér elskaðir, þá hafið gát á yður, að þér látið eigi dragast með af villu þverbrotinna manna og fallið frá staðfestu yðar. Vaxið í náð og þekkingu Drottins vors og frelsara Jesú Krists. (2Pét 3:17-18)
Geta þeir sem hafa sett traust sitt á Jesú fetað leið stöðugs vaxtar í nærveru og krafti Guðs? Eigum við að gera ráð fyrir því að ætlun Guðs sé fylla líf okkar meira og meira af verki sínu þar til “allt sem við gerum í orði og verki” sé gert í nafni Drottins Jesú þar sem við þökkum Guði föður í honum? (Kól 3:11) Getum við hagað lífi okkar þannig að orð Péturs um að vaxa í náð eigi við okkur?


