JA slide show
 

Konungsgarður.is

Sýn Konungsgarðs er að sjá íslenska leiðtoga taka land fyrir Krist með því að reisa upp lærisveina, stofna kirkjur og þjálfa upp fleiri leiðtoga samkvæmt köllun sinni.

Ný grein - Lifðu lífinu til fullnustu

Prenta út
Margt kristið fólki á Íslandi vill vaxa meira.  Margir virðast hinsvegar ekki hafa fundið þá leið til vaxtar í trúnni á Jesú Krist sem skilar árangri og umbreytir lífi fólks þannig að það líkist Jesú eftir því sem það þroskast í trúnni.  Konungsgarður var stofnaður m.a. um það markmið að hjálpa fólki að vaxa, og að hjálpa kirkjum í sama tilgangi.  Hér er ný þýdd grein um þetta efni: Lifðu lífinu til fulls
 

Jóla - og nýárskveðja

Prenta út

Konungsgarður óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Það hefur ekki verið virk starfsemi á vegum Konungsgarðs síðan fyrstu nemendurnir voru útskrifaðir í maí 2009.  Hugsjónir, gildi og sýn Konungsgarðs eru þó óbreytt.  Við erum sannfærð sem fyrr um gildi þess að byggja upp heilbrigða lærisveina og leiðtoga.  Biðjum áfram og sætum færis að vinna að því sem Konungsgarður stendur fyrir á nýju ári.

 

Að byggja upp fólkið í kringum okkur

Prenta út

Seinasta vetur bauðst mér að fara á leiðtogaráðstefnu hjá Campus Crusade for Christ í Swiss.  Þar áskotnaðist mér m.a. þessi litli einblöðungur sem fjallar um leiðir til að byggja upp samstarfsfólk okkar.  Mjög gott efni!

EmpoweringOurCoWorkers

 

Kynning á Íslandi

Prenta út

4.desember síðastliðinn fór 10 manna hópur kristinna leiðtoga frá ýmsum kirkjum á Íslandi á ráðstefnu í Sviss.  Hópurinn var beðinn um að kynna Ísland og það sem er að gerast hér.  Ég tók að mér að útbúa lítið kynningarmyndband í þeim tilgangi. Hægt er að horfa á myndbandið með því að smella hér.

Þessi ráðstefna var skipulögð í samstarfi nokkurra aðila og var mjög vel heppnuð.  Það var þétt en góð dagskrá.  M.a. var hvatning um við sem erum kristin beitum okkur til að móta þjóðfélag okkar.  Við erum kölluð af Guði til þess að blessa lönd okkar og þjóðfélög.

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
English (United Kingdom)Icelandic (IS)

Leit

Í hnotskurn

Markmið Konungsgarðs er að reisa upp heilsteypta leiðtoga fyrir ríki Guðs, sem þjóna Jesú Kristi í krafti Heilags Anda.

Fyrsti leiðtogaskóli Konungsgarðs var hýstur af Íslensku Kristskirkjunni í Reykjavík veturinn 2008-2009.

Markmið námsins er að sá sem útskrifast hafi tekið framförum sem leiðtogi og sé heilsteyptari einstaklingur heldur en í upphafi vetrar.


Stuðningur

Reikningsnúmer Konungsgarðs er 0175-05-70034 Kt: 590209-1980

Ferða- og blessunarsjóður Konungsgarðs er 0175-05-1004 Kt: 590209-1980

Allur stuðningur fer til þess að vinna að sýn og markmiði Konungsgarðs. 

Hafðu samband