Um Konungsgarð

 

Konungsgarður er skóli sem hefur það markmið að reisa upp heilsteypta leiðtoga fyrir ríki Guðs, sem þjóna Jesú Kristi í krafti Heilags Anda.

  • Heilsteyptir leiðtogar
    • Leiðtogar með heilsteyptan og heilbrigðan karakter sem augljóslega er mótaður af Kristi (Ef 4:13). Skólinn leggur áherslu á vöxt í karakter fólks. Þekking án þroska er eins og fljót án bakka.
    • Leiðtogar sem hafa gert sér grein fyrir þeim hæfileikum og köllun sem Guð hefur gefið þeim.
  • Fyrir ríki Guðs
    • Til að sjá framgang í ríki Guðs þarf fólk sem bæði heyrir rödd Guðs og hefur svo hugrekki til að fara út og framkvæma.
  • Þjóna Jesú Kristi
    • Ríki Guðs er ekki lýðveldi heldur konungsríki, við erum kölluð til að þjóna og lúta konunginum Kristi (Jóh 15:5).
  • Í krafti Heilags Anda
    • Fyrir framgang Guðs ríkis þarf að taka opnum örmum á móti öllu því sem Heilagur Andi vill gefa okkur.

Sýn Konungsgarðs er að sjá íslenska leiðtoga fara út og taka land fyrir Krist á Íslandi og víðar með því að reisa upp lærisveina, stofna kirkjur og þjálfa upp fleiri leiðtoga samkvæmt þeirri köllun sem Guð úthlutar hverjum og einum þeirra.

 
English (United Kingdom)Icelandic (IS)

Leit

Í hnotskurn

Markmið Konungsgarðs er að reisa upp heilsteypta leiðtoga fyrir ríki Guðs, sem þjóna Jesú Kristi í krafti Heilags Anda.

Fyrsti leiðtogaskóli Konungsgarðs var hýstur af Íslensku Kristskirkjunni í Reykjavík veturinn 2008-2009.

Markmið námsins er að sá sem útskrifast hafi tekið framförum sem leiðtogi og sé heilsteyptari einstaklingur heldur en í upphafi vetrar.


Stuðningur

Reikningsnúmer Konungsgarðs er 0175-05-70034 Kt: 590209-1980

Ferða- og blessunarsjóður Konungsgarðs er 0175-05-1004 Kt: 590209-1980

Allur stuðningur fer til þess að vinna að sýn og markmiði Konungsgarðs. 

Hafðu samband