Fögnuður
Konungsgarður er staður og samhengi þar sem við nýtum hvert tækifæri til að fagna lífi okkar í Jesú Kristi.
Einfaldleiki
Því flóknari sem við höfum hlutina, því meira hafa þeir tilhneigingu til að verða eitthvað sem kemur upp á milli okkar og Guðs. Guð vill eiga beinan aðgang að okkur í syni sínum Jesú Kristi. Lifum einföldu lífi sem lærisveinar Hans. Það er erfitt að margfalda flókna hluti en einfalt að margfalda einfalda hluti.
Margföldun
Jesús reyndi ekki að gera alla hluti sjálfur, Hann hafði ákveðinn fókus. Hann byggði upp lærisveina sína og lagði svo í hendur þeirra að byggja upp kirkjuna. Stundum erum við uppteknari af því að fá árangur sem fyrst frekar en að leggja á okkur það erfiði og tíma að plægja jörðina, sá sæði og uppskera svo laun erfiðis okkar. Konungsgarður vill sjá djúpa umbreytingu hjá fáum leiðtogum frekar en grunna umbreytingu hjá mörgum.


