Hvernig starfar Konungsgarður?

Prenta út
Konungsgarður notar ákveðið kerfi til að byggja upp heilbrigða leiðtoga. Þetta kerfi miðar að því að byggja upp fimm lykil eiginleika hjá verðandi leiðtoga:
  1. Kristur – samfélag okkar við Krist.
  2. Koinonia (samfélag) – heilbrigður leiðtogi vex upp í þéttu samfélagi þar sem fólk deilir lífi sínu hvert með öðru.
  3. Karakter – heilbrigður leiðtogi hefur heilsteyptan karakter.
  4. Köllun – heilbrigður leiðtogi þekkir það sem Guð hefur kallað hann til að gera og fylgir því eftir af ástríðu.
  5. Kostir – leiðtogi sem hefur þekkingu og getu til að fylgja eftir köllun sinni.

Að byggja upp leiðtoga er ekki ósvipað því að planta tré. Það þarf góðan jarðveg fyrir gott tré. Verðandi leiðtogi þarf net af heilbrigðum lærisveinum Krists sem deila lífi sínu með nemandanum. Bóklestur og starfsþjálfun er eitt - það sem þjálfast með mannlegum samskiptum og þéttu samfélagi er ekki síður mikilvægt. Fyrir Konungsgarð eru þetta Kristur, Koinonia (samfélag), Karakter, Köllun og Kostir (praktísk geta) - í þessari röð. Bóklestur tilheyrir kostum - Kristur, Koinonia og Köllun er ofar í forgangsröðinni og myndar í raun það samhengi og bakland sem bóklestur og þekking þarf að hafa til að það verði að réttu gagni. Hver nemandi fær mentor og fyrirbiðjanda. Nemendur hitta mentorinn sinn einu sinni í viku. Fyrirbiðjendur hitta nemendur öðru hverju en biðja stöðugt fyrir nemendum. Til að leiðtogi taki framförum er mikilvægt að það sé hópur af fólki sem deilir lífi sínu með honum.

Mikilvægasta kennslubók Konungsgarðs er Biblían. Konungsgarður leggur áherslu á Biblíurannsókn, sem þjálfar nemendur í því að meðhöndla orð Guðs af ábyrgð og lifa það út.

Í fyrsta skóla Konungsgarðs veturinn 2008-2009 var mest af kennslunni í höndum Ágústs Valgarðs, en markmið Konungsgarðs er að vinna að því að fá fleiri og fleiri aðra kennara um borð því hver kennari hefur sína styrkleika.

Konungsgarður er sjálfstæð eining en er ekki kirkja og er ekki deild í neinni kirkju.  Kirkjur geta gert hluti sem Konungsgarður getur ekki gert og öfugt.  Sýn Konungsgarðs er að starfa með kirkjum og öðrum sem vilja byggja upp heilsteypta leiðtoga.