Orðið "konungsgarður" er notað í sumum af íslendingasögunum okkar, t.d. Ólafs sögu helga. Konungur býr í konungsgarði og þar dvelja þeir menn sem eru handgengir konungi. Fyrir skólann Konungsgarður hefur þetta orð a.m.k. þrjár tilvísanir:
- Skóli þar sem Jesús er konungur. Við þjónum honum, lútum honum og erum lærisveinar hans.
- Garður er staður þar sem ræktun fer fram og mismunandi plöntur vaxa og taka framförum. Konungsgarður hefur það markmið að byggja upp leiðtoga sem ganga fram í þeirri köllun sem Guð gefur hverjum og einum.
- Konungsgarður er líka notað fyrir þann stað þar sem þjónar konungs dvelja og sitja við borð konungs. Þetta nafn hefur líka tilvísun í stríð. Þeir sem dvelja í konungsgarði eru ávallt tilbúnir að berjast fyrir konunginn.


