Saga Konungsgarðs hingað til

Prenta út
  • 2007 - Ágúst vinnur að skólaverkefni við The Masters Institute þar sem hugmyndin um Konungsgarð tekur á sig mynd.
  • Júlí 2008 - Ágúst og fjölskylda flytja til Eyjólfsstaða frá Minnesota. Fljótlega kemur upp sú hugmynd að byrja með fyrsta skóla Konungsgarðs strax um haustið.
  • Október 2008 - Skólasetning leiðtogaskóla Konungsgarðs sem haldin var í Íslensku Kristskirkjunni veturinn 2008-2009. 6 nemendur í fullu námi, einn nemandi í hálfu námi.
  • Nóvember 2008 - Nemendur í fullu námi við Konungsgarð dvelja helgi að Eyjólfsstöðum.
  • Janúar 2009 - Konungsgarður er stofnaður formlega sem félagasamtök og fær kennitöluna: 590209-1980
  • Febrúar 2009 - Fyrsti erlendi kennarinn kennir við Konungsgarð, Dr. Helmar Heckel.
  • Maí 2009 - Fyrsta útskrift Konungsgarðs.
  • Júlí 2009 - Ferða- og blessunarsjóður Konungsgarðs er stofnaður. Tilgangur sjóðsins er að styrkja leiðtoga til að eiga samfélag við aðra leiðtoga þó að langar vegalengdir skilji að. Einnig að geta blessað leiðtoga sem þurfa stuðning.