Félagið Konungsgarður hefur nú verið stofnað. Stofnfundur var haldinn 15.febrúar 2009. Stofnendur eru:
![]() | Ágúst Valgarð Ólafsson - tölvunarfræðingur. Starfar hjá Augasteinum, ABC barnahjálp og Austurneti. Ágúst er einn af stofnendum Íslensku Kristskirkjunnar og er virkur í starfi hennar. |
![]() | Hjalti Skaale Glúmsson - hugbúnaðarsérfræðingur. Hjalti starfar hjá Húsasmiðjunni og er virkur í forystu Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu í Reykjavík. |
![]() | Unnar Erlingsson - grafískur hönnuður og eigandi Augasteina. Unnar hefur beitt sér óspart fyrir framgangi fagnaðarerindisins og er virkur meðlimur í Íslensku Kristskirkjunni. |





