Konungsgarður er skóli sem hefur það markmið að reisa upp heilsteypta leiðtoga fyrir ríki Guðs, sem þjóna Jesú Kristi í krafti Heilags Anda.
- Heilsteyptir leiðtogar
- Leiðtogar með heilsteyptan og heilbrigðan karakter sem augljóslega er mótaður af Kristi (Ef 4:13). Skólinn leggur áherslu á vöxt í karakter fólks. Þekking án þroska er eins og fljót án bakka.
- Leiðtogar sem hafa gert sér grein fyrir þeim hæfileikum og köllun sem Guð hefur gefið þeim.
- Fyrir ríki Guðs
- Til að sjá framgang í ríki Guðs þarf fólk sem bæði heyrir rödd Guðs og hefur svo hugrekki til að fara út og framkvæma.
- Þjóna Jesú Kristi
- Ríki Guðs er ekki lýðveldi heldur konungsríki, við erum kölluð til að þjóna og lúta konunginum Kristi (Jóh 15:5).
- Í krafti Heilags Anda
- Fyrir framgang Guðs ríkis þarf að taka opnum örmum á móti öllu því sem Heilagur Andi vill gefa okkur.
Sýn Konungsgarðs er að sjá íslenska leiðtoga fara út og taka land fyrir Krist á Íslandi og víðar með því að reisa upp lærisveina, stofna kirkjur og þjálfa upp fleiri leiðtoga samkvæmt þeirri köllun sem Guð úthlutar hverjum og einum þeirra.


