JA slide show
 

Konungsgarður.is

Sýn Konungsgarðs er að sjá íslenska leiðtoga taka land fyrir Krist með því að reisa upp lærisveina, stofna kirkjur og þjálfa upp fleiri leiðtoga samkvæmt köllun sinni.

Vaxtarhópur - til að vaxa sem lærisveinn

Prenta út

Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda,  og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.  Mat 28:19-20

Verkefni okkar er að vaxa sem lærisveinar Jesú Krists.  Orð Jesú um þetta eru ekki flókin né torskilin.  Án þess að við finnum leið til að lifa sem lærisveinar hans í daglegu lífi, frá degi til dags, og fara vaxandi, verður lítið bragð af okkur sem lærisveinar (smbr. Mat 5:13).  Konungsgarður er með tillögu að einföldu módeli til að vaxa sem lærisveinn.  Þetta módel kallast "Vaxtarhópur" - fylgist með hér á síðunni, við munum setja inn frekari upplýsingar fljótlega.

 
English (United Kingdom)Icelandic (IS)

Leit

Í hnotskurn

Markmið Konungsgarðs er að reisa upp heilsteypta leiðtoga fyrir ríki Guðs, sem þjóna Jesú Kristi í krafti Heilags Anda.

Fyrsti leiðtogaskóli Konungsgarðs var hýstur af Íslensku Kristskirkjunni í Reykjavík veturinn 2008-2009.

Markmið námsins er að sá sem útskrifast hafi tekið framförum sem leiðtogi og sé heilsteyptari einstaklingur heldur en í upphafi vetrar.


Stuðningur

Reikningsnúmer Konungsgarðs er 0175-05-70034 Kt: 590209-1980

Ferða- og blessunarsjóður Konungsgarðs er 0175-05-1004 Kt: 590209-1980

Allur stuðningur fer til þess að vinna að sýn og markmiði Konungsgarðs. 

Hafðu samband