JA slide show
 

Konungsgarður.is

Sýn Konungsgarðs er að sjá íslenska leiðtoga taka land fyrir Krist með því að reisa upp lærisveina, stofna kirkjur og þjálfa upp fleiri leiðtoga samkvæmt köllun sinni.

Leiðtoganet Konungsgarðs

Prenta út

Síðan á útskrift fyrsta skóla Konungsgarðs höfum við verið að skoða hvert næsta skref Konungsgarðs verður. Það er ennþá markmið Konungsgarðs að standa fyrir skólahaldi þó að slíkur skóli verði ekki næsta vetur. En svo hefur önnur hugmynd líka verið í mótun. Það er hugmynd um að stofna "Leiðtoganet Konungsgarðs."

Þetta er ennþá hugmynd sem er í mótun - en við höfum rætt m.a.:

  • Leiðtogar um allt land sem vilja uppörva hver annan og standa fyrir mikilvæg gildi.
  • Tvö skilyrði til að vera þáttakandi í netinu: 1)Uppörva annan leiðtoga í netinu einu sinni í viku 2) Koma á eina af leiðtogahelgum netsins árlega.
  • Hugmyndin er að halda 2-4 leiðtogahelgar á ári - víðsvegar um landið - Akureyri, Eyjólfsstaðir, Höfn, Akranes, Stykkishólmur ofl. Á þessum leiðtogahelgum munum við m.a. tilbiðja Guð, biðja saman, minna hvert annað á og ræða hvað leiðtoganetið snýst um og kalla hvert annað til ábyrgðar um það og vera með markvissa kennslu byggða á kennslueiningum og módeli Konungsgarðs um leiðtogaþjálfun.
  • Tilgangur leiðtoganetsins er að hlúa að þeim leiðtogum sem eru til staðar. Leiðtogaskóli Konungsgarðs snýst meira um að reisa upp nýja leiðtoga - en leiðtoganetið byggir upp þá leiðtoga sem eru til staðar. Þetta eru sem sagt tvær leiðir að sömu sýn Konungsgarðs um heilsteypta leiðtoga á Íslandi.
  • Leiðtoganet Konungsgarðs mun standa fyrir þau gildi sem við leiðtogarnir erum sannfærð um að eru grundvallar atriði, hlutir eins og: að við leitumst við að hafa einhvern sem kallar okkur til ábyrgðar - mentor eða leiðbeinanda, við erum fyrri til að leita sátta og hreinsa andrúmsloftið, við gerum okkar besta til að lifa í lækningu og andlegum vexti, við viðurkennum að við þurfum á hvert öðru að halda og sýnum það í verki með því að hafa reglulega samband hvert við annað.
  • Leiðtoganet Konungsgarðs nær þvert á kirkjudeildir - þetta er net þar sem þeir leiðtogar sem vilja standa fyrir tiltekin gildi og hugsjón standa saman.

Fylgstu með hér á síðunni eða hafðu samband ef þú hefur áhuga á Leiðtoganeti Konungsgarðs.

 
English (United Kingdom)Icelandic (IS)

Leit

Í hnotskurn

Markmið Konungsgarðs er að reisa upp heilsteypta leiðtoga fyrir ríki Guðs, sem þjóna Jesú Kristi í krafti Heilags Anda.

Fyrsti leiðtogaskóli Konungsgarðs var hýstur af Íslensku Kristskirkjunni í Reykjavík veturinn 2008-2009.

Markmið námsins er að sá sem útskrifast hafi tekið framförum sem leiðtogi og sé heilsteyptari einstaklingur heldur en í upphafi vetrar.


Stuðningur

Reikningsnúmer Konungsgarðs er 0175-05-70034 Kt: 590209-1980

Ferða- og blessunarsjóður Konungsgarðs er 0175-05-1004 Kt: 590209-1980

Allur stuðningur fer til þess að vinna að sýn og markmiði Konungsgarðs. 

Hafðu samband